ÞOR - Þróun og rannsóknir - Forsíða

Kringlunni 1  |  103 Reykjavík |  Sími: 568-8467  |  Hafa samband

Jokullon (77K)

ÞOR var stofnað í Reykjavík þann 18. ágúst 2006 með það að markmiði að bjóða óháðar og faglegar rannsóknir og greiningar.


ÞOR er sjálfstætt rannsóknarfyrirtæki sem samanstendur af þverfaglegum hópi úrvals fræðimanna, sem taka að sér rannsóknar- og greiningarverkefni þar sem krafist er vísindalegra og faglegra vinnubragða.


HQ (20K)

ÞOR skapar íslensku atvinnulífi aðgang að framúrskarandi vel menntuðu og óháðu fólki á sviði raun- og félagsvísinda til að aðstoða það við lausn vandamála og sköpun nýrra tækifæra. ÞOR skapar einnig íslenskum rannsakendum vettvang til að vinna að rannsóknum sínum í umhverfi þar sem þeir njóta stuðnings og hvatningar jafningja sinna og veitir þeim tækifæri til að miðla íslenskum ráðamönnum og athafnamönnum af sérþekkingu sinni.


Ráðgjafar ÞOR eru staðsettir víða um heim. Margir eru hjá erlendum háskólum eða fyrirtækjum, en aðrir eru sjálfstætt starfandi vísindamenn. Þeir eru því ekki starfsmenn ÞOR í hefðbundnum skilningi, en það fyrirkomulag gerir ÞOR mögulegt að uppfylla markmið fyrirtækisins um að veita óháða ráðgjöf og stunda rannsóknir þar sem raunverulega er sóst eftir vísindalegri niðurstöðu.


Ráðgjafar ÞOR eiga að baki fjölbreytta starfsreynslu hjá alþjóðlegum fyrirtækjum um víða veröld, hafa víðtæka reynslu af rannsóknarstörfum og hafa birt vísindagreinar í ritrýndum tímaritum innan faggreina sinna.